05.02.1953
Sameinað þing: 37. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 147 í D-deild Alþingistíðinda. (2563)

159. mál, hafnarsjóður Ísafjarðar

Frsm. (Gísli Jónsson):

Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til að ræða frekar efnislega þá till., sem hér er til umræðu, en mun fyrir hönd n. taka aftur brtt. á þskj. 608, eftir þá yfirlýsingu, sem gefin hefur verið, þar sem bæði ég sem form. n. og n. öll treystir fullkomlega vitamálastjóra til þess að láta rannsóknina eða athugunina fara fram, eins og hann hefur gefið yfirlýsingu um. Ég læt það hins vegar á vald hv. flm., hvort hann dregur till. til baka eða gerir till. um að vísa henni til ríkisstj. eftir þá yfirlýsingu, sem hér hefur komið fram, en fyrir hönd n. tek ég aftur þá till., sem er á fyrr nefndu þingskjali.