12.11.1952
Sameinað þing: 12. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 351 í D-deild Alþingistíðinda. (2811)

125. mál, gæðamat iðnaðarvara

Fyrirspyrjandi (Rannveig Þorsteinsdóttir):

Ég þakka hæstv. ráðh. upplýsingarnar. Mér hefur alltaf verið það ljóst, að það krefst mikils undirbúnings að koma gæðamatinu af stað, og það mun krefjast mikillar vinnu, þar til það er komið í fullan og réttan gang. En ég sé, að það er unnið að því, og gleður mig mjög að heyra það.