30.01.1953
Efri deild: 60. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 71 í C-deild Alþingistíðinda. (2943)

145. mál, skipun læknishéraða

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Eins og ég tjáði hæstv. forseta áðan, þá hefur mér ekki gefizt tími til þess að koma á prent nál. um þetta mál fyrr, en nú eftir hádegi í dag. Nál. er í prentun, og ég mundi mjög óska eftir því, að hæstv. forseti frestaði þessari umr. þangað til nál. væri komið. Ef hann verður við þeirri ósk minni, mun ég fresta minni ræðu og bíð því eftir að heyra þann úrskurð.