24.11.1952
Efri deild: 30. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 144 í B-deild Alþingistíðinda. (295)

36. mál, hafnarbótasjóður

Jóhann Jósefsson:

Herra forseti. Ég ætla ekki að blanda mér inn í umræðurnar, en út af þeim athugasemdum, sem fram hafa komið, og samkvæmt því loforði, sem hv. frsm. n. hefur gefið fyrir hennar hönd, þá vil ég taka undir þau fyrirheit frá hans hálfu, að þetta mál verði athugað, en vildi þá mælast til þess við hæstv. forseta, að málið yrði ekki tekið á dagskrá, fyrr en n. hefur lokið þeirri athugun og gefið vísbendingu þar að lútandi.