16.12.1952
Efri deild: 41. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 86 í C-deild Alþingistíðinda. (2959)

187. mál, eftirlit með rekstri ríkisins og ríkisstofnana

Flm. (Gísli Jónsson):

Herra forseti. Ég skal verða við tilmælum hæstv. forseta um að ræða ekki mjög þetta mál hér. Ég get látið nægja að vísa að mestu leyti til grg. Þar er tekið fram, hvers vegna frv. er fram borið, og vil ég leyfa mér að leggja til, að málinu verði vísað til 2. umr. og hv. fjhn. að lokinni þessari umr.