08.12.1952
Neðri deild: 36. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 334 í C-deild Alþingistíðinda. (3238)

83. mál, brúargerðir

Forseti (SB):

Út af fyrirspurn hv. 1. þm. Árn. skal það tekið fram, að það er rétt hjá honum, að samgmn. hefur beðið eftir áliti vegamálastjóra. Hv. þm. veit, að slík frv. eru allajafna ekki afgreidd án álits þessa embættismanns, sem fjallar um brúargerðir og vegamál í landinu. Nú hefur þetta álit vegamálastjóra ekki borizt, en þrátt fyrir það skal orðið við þeirri ósk hv. þm., að málið verði afgreitt frá n.