25.11.1952
Neðri deild: 32. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 403 í C-deild Alþingistíðinda. (3310)

163. mál, Búnaðarbanki Íslands

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Það er rétt, sem kemur fram í grg. þessa frv. og framsöguræðu hv. þm., að hér er bil nokkurt, sem brúa þarf, til þess að allt geti faríð vel fram um lánveitingar úr ræktunarsjóði og byggingarsjóði og engir verði útundan. Ríkisstj. hefur þetta mál í athugun, og geri ég mér vonir um, að hún muni áður en langt um liður finna á því heppilega lausn. En þessa leið, sem hv. þm. stingur upp á í frv., er aftur á móti ekki hægt að fara af ýmsum ástæðum, sem ég sé ekki ástæðu til að greina nú.