08.12.1952
Neðri deild: 36. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 411 í C-deild Alþingistíðinda. (3317)

169. mál, framleiðsluráð landbúnaðarins

Skúli Guðmundsson:

Herra forseti. Það er aðeins viðvíkjandi till. 1. flm. um nefnd. Ég vil leyfa mér að leggja það til, að máli þessu verði vísað til hv. sjútvn., en ekki fjhn. Frv. er um framleiðsluráð sjávarútvegsins o. fl., og ég vil benda á það í þessu sambandi, að t. d. þegar hér var á ferð á þingi áður fyrr frv. um framleiðsluráð landbúnaðarins, þá fór slíkt mál til landbn. Ég tel því, að málið eigi betur heima á sjútvn. heldur en í fjhn.