12.12.1952
Neðri deild: 39. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 429 í C-deild Alþingistíðinda. (3368)
180. mál, tollskrá o. fl.
Stefán Jóh. Stefánsson:
Herra forseti. Af því að inn í það mál, sem nú hefur verið rætt utan dagskrár, hefur blandazt meðal annars afgreiðsla mála frá nefndum, þá vildi ég nota tækifærið hér til að beina því til hæstv. forseta og meiri hluta hv. fjhn. þessarar d., að frv., sem lagt var hér fram í byrjun þings, frv. til laga um breyt. á l. nr. 35 27. apríl 1950, um verðlag, verðlagseftirlit og verðlagsdóm, var afgr. 9. eða 10. nóv. í fjhn., og við, sem skipuðum minni hl. fjhn., gáfum út nál. 11. nóv. eða fyrir röskum mánuði. Meiri hl. fjhn. hefur haft svo annríkt, að hann hefur ekki getað skilað nál. Ég vil skjóta því til hæstv. forseta, hvað lengi hann ætli að bíða eftir meiri hlutanum, án þess að þetta mál sé tekið fyrir til umr. hér í hv. d. Og mér finnst, að minn kæri vinur, hv. form. fjhn., ætti, áður en hann óskar eftir fleiri málum til okkar ágætu fjhn., að hugsa um að afgr. af sinni hálfu nál. eftir mánaðartíma um mál, sem búið er að afgr. í n.