03.10.1952
Efri deild: 3. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 35 í B-deild Alþingistíðinda. (34)

6. mál, umboð þjóðjarða

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Með lögum hafa hin fornu umboð þjóðjarða verið felld niður nema eitt, þ.e. Arnarstapaumboð og Skógarstrandar. Þetta frv., sem hér liggur fyrir, miðar að því, að þetta umboð verði lagt niður og störf þau, sem umboðsmanninum bar að vinna, verði lögð undir sýslumanninn í Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu. — Ég leyfi mér að leggja til, að frv. verði vísað til allshn. að lokinni þessari 1. umr.