03.11.1952
Efri deild: 20. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 611 í C-deild Alþingistíðinda. (3565)
113. mál, uppbót á sparifé
Frsm. (Sigurður Ó. Ólafsson):
Herra forseti. Þetta frv., sem hér liggur fyrir á þskj. 152, um kennslu í vélfræði, er flutt af menntmn. að beiðni hæstv. menntmrh. Frv. er samið af mþn., sem samgmrn. skipaði árið 1949 til þess að athuga og gera tillögur um nauðsynlegar breytingar varðandi réttindi vélstjóra samkv. l. nr. 66 1946, svo og tillögur um fyrirkomulag á kennslu fyrir þá, sem ætla að gerast vélstjórar. Í n. þessa voru skipaðir 5 menn, en 3 af þeim, eða meiri hl. n., hafa samið og skilað því frv., sem hér liggur fyrir. Eins og ég gat um, er frv. flutt af menntmn., en n. hefur ekki tekið það þannig til meðferðar, að einstakir nm. hafi tekið ákveðna afstöðu til málsins, og hafa þeir allir óbundnar hendur um afgreiðslu þess. Ég sé ekki ástæðu til þess að fara frekar út í þetta frv. nú á þessu stigi málsins, enda er hæstv. menntmrh. staddur hér í d., og ég geri þá ráð fyrir, að hann muni eitthvað ræða um það.