24.11.1952
Neðri deild: 31. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1603 í B-deild Alþingistíðinda. (3652)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir
Einar Olgeirsson:
Herra forseti. Ég vildi leyfa mér hér utan dagskrár að beina þeirri fyrirsþurn til hæstv. ríkisstj., eða kannske réttara sagt ósk, hvort Alþingi mætti vænta þess, að hún gæfi nokkra skýrslu um eða léti í ljós álit sitt um þá deilu, sem við nú eigum í út af landhelginni við Breta og virðist vera komin á allalvarlegt stig nú sem stendur. Það er, eins og vitanlegt er, dálítið erfitt, þegar slík mál ber að höndum, að ætla að reyna að taka þau fyrir á þann hátt að bera fram annaðhvort fyrirspurn með venjulegu móti til hæstv. ríkisstj., því að það tekur þá meira en viku, þangað til slíku bæri að svara, eða bera fram þáltill., því að það tekur þá máske margar vikur, áður en hún kæmi á dagskrá, en hér er hins vegar um svo brýnt mál að ræða, að ég tel alveg víst, að það væri mjög almennur vilji, þegar hæstv. ríkisstj. væri til þess reiðubúin, og mundi vera fagnað mjög, ef hún gæfi nokkra skýrslu um það mál og gæfi alþm. tilefni til að ræða það, svo sem hæstv. ríkisstj. stundum áður hefur gert um slík veigamikil mál utan dagskrár. Mér þætti ákaflega vænt um að heyra frá hæstv. ríkisstj., hvort við mættum ef til vill eiga von á slíku eða hvort hún mundi taka slíkt til athugunar.