13.10.1952
Efri deild: 7. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1610 í B-deild Alþingistíðinda. (3669)

Vélræn upptaka á þingræðum

forseti (BSt):

Ég vil leyfa mér að tilkynna hv. þdm., að þegar ræður þm. hafa verið vélritaðar eftir segulbandi, verður hverjum þm. gerður kostur á að líta yfir ræður sínar og koma á framfæri smávægilegum lagfæringum á málfári og framsetningu, enda raskist ekki efni. Handrit með árituðum breytingum óskast afhent lestrarsalsverði innan viku frá því, að ræðan var lögð á borð þm. Að öðrum kosti verður litið svo á, að þm. óski ekki að gera neinar till. um leiðréttingar. Þeir, sem þegar hafa tekið til máls á þessu þingi, hafa fengið möppur með ræðum sínum.