19.12.1952
Efri deild: 47. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1614 í B-deild Alþingistíðinda. (3685)

Þinghlé

forseti (BSt):

Þetta verður án efa síðasti fundur deildarinnar nú fyrir jólafríið. Vil ég leyfa mér að óska öllum hv. þdm. gleðilegra jóla og góðs og farsæls komandi árs, og þeim hv. þdm., sem heima eiga utan Rvíkur og fara heim um jólin, óska ég góðrar ferðar heim og góðrar heimkomu og vona og óska, að við megum allir hittast hér heilir og hressir eftir jólafríið.