19.12.1952
Efri deild: 47. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1614 í B-deild Alþingistíðinda. (3686)

Þinghlé

Haraldur Guðmundsson:

Herra forseti. Ég veit ég mæli fyrir munn dm. allra, þegar ég þakka hæstv. forseta góðar óskir og eins þegar ég flyt honum beztu óskir um ánægjuleg jól, farsælt nýár, góða ferð heim, góða heimkomu og óska, að hann komi heill til endurfunda að jólafríinu loknu. Bið ég hv. þdm. að taka undir þessar óskir mínar með því að rísa úr sætum. — [Þdm. risu úr sætum.]