19.12.1952
Sameinað þing: 26. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1615 í B-deild Alþingistíðinda. (3692)

Þinghlé

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Ég vil leyfa mér — og ég veit, að ég segi það fyrir munn allra hv. þm. — að þakka hæstv. forseta góðar óskir í okkar garð. Og ég vil um leið leyfa mér fyrir hönd okkar þm. að þakka honum fyrir gott samstarf, það sem af er, og óska honum gleðilegra jóla, góðrar heimferðar og að við megum sjá hann heilan á húfi hér aftur, óska honum um leið gleðilegs nýárs. Ég vil leyfa mér að biðja hv. þm. um að taka undir óskir mínar til hæstv. forseta með því að rísa úr sætum. — [Þm. risu úr sætum.]