11.12.1952
Neðri deild: 38. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 249 í B-deild Alþingistíðinda. (462)

7. mál, innheimta

Frsm. (Skúli Guðmundsson):

Herra forseti. Með frv. þessu er lagt til, að ríkisstj. verði heimilað að innheimta á næsta ári ýmis gjöld með viðauka. Frv. er flutt til framlengingar ákvæðum, sem gilt hafa undanfarin ár um þetta efni, og eru ákvæði þess alveg samhljóða þeim lagafyrirmælum, sem gilda nú í ár.

Fyrir liggur nál. á þskj. 407 frá fjhn., og mælir hún með frv., en eins og þar kemur fram, voru tveir nm. ekki viðstaddir, þegar málið var afgr. í nefndinni.