08.10.1952
Neðri deild: 5. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 278 í B-deild Alþingistíðinda. (507)

13. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Í þessu frv. er gerð tillaga um að framlengja innheimtu söluskattsins fyrir árið 1953. Eins og greinilega hefur komið fram í þeim umr., sem þegar hafa átt sér stað hér á hv. Alþingi um fjárlagafrv. og fjárhag ríkisins yfirleitt, þá er ómögulegt að komast hjá því að halda áfram að innheimta þennan skatt. — Ég leyfi mér að óska eftir því, að málinu verði vísað til hv. fjhn. að lokinni umr.