19.12.1952
Efri deild: 44. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 335 í B-deild Alþingistíðinda. (558)

13. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Herra forseti. Ég vildi aðeins taka það fram út af síðustu orðunum, sem hv. þm. Barð. mælti, að yfirlýsing mín um framkvæmd söluskattslaganna náði ekki lengra, en orð mín hljóðuðu. Þess vegna get ég ekki gefið neina yfirlýsingu um það atriði, sem hann minntist á í síðustu orðum sínum.