20.01.1953
Neðri deild: 53. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 359 í B-deild Alþingistíðinda. (608)

88. mál, hitaveitur utan Reykjavíkur

Forseti (SB):

Það er komin fram till. um að vísa frv. til hv. allshn., sem hefur um það fjallað áður, og tel ég eðlilegt, að hún athugi það, án þess að sérstök atkvgr. fari fram um að vísa málinu til n. Ég leyfi mér því að fresta umr. og beini þeim tilmælum til hv. n., að hún taki frv. til athugunar með tilliti til þeirra breyt., sem gerðar hafa verið á því í hv. Ed.