28.01.1953
Efri deild: 57. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 786 í B-deild Alþingistíðinda. (884)

131. mál, sala jarðeigna í opinberri eigu

Þorsteinn Þorsteinsson:

Herra forseti. Landbn. hafði þetta mál til meðferðar hér, þegar það var áður í d. og afgreitt til Nd. Þar hefur það tekið ýmsum breyt. M.a. er þar komin ný jörð inn í, sem nokkur vafi mun leika á, hvort heppilegt er að verði seld svo umsvifalaust eða ekki, og ég átti áðan tal við formann n., sem ekki er nú viðstaddur, og okkur kom saman um það, að það væri heppilegra, að n. kæmi saman til fundar og athugaði málið, áður en það væri afgreitt. Þar af leiðandi óska ég þess, að hæstv. forseti vilji nú fresta málinu.