20.11.1952
Efri deild: 29. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 940 í B-deild Alþingistíðinda. (989)

42. mál, verðlag

Frsm. (Rannveig Þorsteinsdóttir):

Þegar mál þetta var hér til þessarar umræðu fyrst, þá var því skotið fram af hæstv. dómsmrh., hvort hæstv. viðskmrh. vissi um þá till., sem allshn. hefur borið fram á þskj. 241, og gat ég þess þá, að viðskmrh. mundi vera kunnugt um efni till., þótt ekki hefði verið ráðgazt við hann um till. eins og hún lá fyrir. Nú hef ég sýnt honum þessa till., og hann segist fyrir sitt leyti ekkert hafa við samþykkt hennar að athuga.