25.02.1954
Efri deild: 52. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1105 í B-deild Alþingistíðinda. (1027)

12. mál, áfengislög

Bernharð Stefánsson:

Herra forseti. Þó að hér liggi fyrir brtt. um umorðun á gr., sem ég mundi samþ. að þessari till. fallinni, þá lít ég svo á, að það sé með öllu óþarft og alls ekki venjulegt, að lög byrji með því að gera grein fyrir tilgangi þeirra. Tilgangurinn sýnir sig með lagagreinunum, sem samþykktar eru, og þess vegna segi ég já.