12.04.1954
Efri deild: 85. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1210 í B-deild Alþingistíðinda. (1127)

201. mál, virkjun Sogsins

Frsm. (Jóhann Jósefsson):

Herra forseti. Fyrir hönd hv. iðnn. vil ég hér með munnlega ítreka það, sem undirskrifað er á þskj. 780, en þar er sagt, að n. leggi — til, að frv. verði samþ. óbreytt.

Ég tel ekki þörf fyrir mig að bæta hér neinu öðru við, en n. var mjög einhuga um, að þetta stórmerka mál fengi sem fljótasta og greiðasta afgreiðslu í gegnum þessa hv. deild.