06.11.1953
Neðri deild: 18. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 70 í B-deild Alþingistíðinda. (117)
38. mál, greiðslur vegna skertrar starfshæfni
Frsm. (Páll Þorsteinsson):
Herra forseti. Frv. þetta er borið fram af hæstv. ríkisstj., og er efni þess að heimila ríkisstj. að staðfesta fyrir Íslands hönd samning þann, sem undirritaður var á félagsmálaráðherrafundi Norðurlanda í Reykjavík 20. júlí þessa árs, en þessi samningur er prentaður sem fskj. með frv. Heilbr.- og félmn. hefur athugað þetta mál og leggur til einróma, að frv. verði samþykkt óbreytt.