17.11.1953
Efri deild: 22. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1270 í B-deild Alþingistíðinda. (1241)

82. mál, sauðfjársjúkdómar

Frsm. (Páll Zóphóníasson):

Herra forseti. N. hefur að sjálfsögðu ekki séð till. hv. 1. þm. Eyf. (BSt), sem kom hér fram skriflega á þessum fundi, og þess vegna ekki rætt hana neitt.

Till. þm. S-Þ. (KK) á þskj. 169 hefur n. að vísu lesið og athugað lítils háttar, en hefur um hana óbundnar hendur, eins og málið liggur fyrir núna, og þess vegna hafa nm. alveg óbundnar hendur um báðar þessar till. og ekki tekið afstöðu til þeirra.

Mér sjálfum er næst skapi að taka nú bara upp Bleiksmýrardal vestan ár inn í heimild til sölu handa Hrafnagilshreppi.