17.11.1953
Efri deild: 22. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1271 í B-deild Alþingistíðinda. (1243)

82. mál, sauðfjársjúkdómar

Forseti (GíslJ):

Þá hafa ekki fleiri kvatt sér hljóðs. — Mér þótti rétt í gær að fresta umræðum, vegna þess að borin var fram skriflega brtt. á þskj. 169, og bíða þar til hún lægi fyrir prentuð. Nú er hér önnur till. skrifleg frá hv. 1. þm. Eyf. Hún er aðeins um það, hvernig skuli skipa í ákveðinn dóm, ef til kemur, og sé ég því ekki ástæðu til þess að fresta umræðunum vegna þessarar fram komnu till., og er því umr. þessari lokið.