17.11.1953
Efri deild: 22. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1272 í B-deild Alþingistíðinda. (1246)

82. mál, sauðfjársjúkdómar

Bernharð Stefánsson:

Eins og ég hef lýst í umr., þá taldi ég þá till., sem hér var til atkvæða, algerlega óþarfa, og ég er sömu skoðunar og er því í mjög miklum vafa um, þó að mín brtt. við hana hafi verið samþykkt, hvernig ég á að greiða atkv., en vegna niðurlags hennar segi ég þó já.

Frv. samþ. með 8:1 atkv., að viðhöfðu nafnakalli, og sögðu

já: IngF, JK, LJóh, PZ, SÓÓ, AE, BSt, GíslJ. nei: KK.

FRV, HG greiddu ekki atkv.

6 þm. (BBen, BrB, GÍG, HermJ, JJós, VH) fjarstaddir.

Frv. afgr. til Nd.