09.12.1953
Efri deild: 30. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1278 í B-deild Alþingistíðinda. (1282)

74. mál, tékkar

Frsm. (Lárus Jóhannesson):

Herra forseti. Um þetta mál er alveg nákvæmlega sama að segja og um mál það, sem var til umr. hér næst á undan viðvíkjandi breytingu á víxillögunum. Ég sé því ekki ástæðu til að endurtaka það, en leyfi mér f. h. fjhn., sem er sammála um þá till., að leggja til, að frv. verði samþ. óbreytt.