17.12.1953
Efri deild: 39. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1294 í B-deild Alþingistíðinda. (1333)

101. mál, þingfararkaup alþingismanna

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. Ég segi já, og það byggist á því, að þingfararkaup alþm. undanfarin 8 ár hefur verið greitt ólöglega og ekki fylgt neinum lögum. Með því að setja þessi lög, þá vænti ég, að það verði greitt löglega hér eftir, og þess vegna segi ég já, enda þótt ég sé ósamþykkur sumum ákvæðum frumvarpsins.