10.12.1953
Efri deild: 32. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1304 í B-deild Alþingistíðinda. (1363)

123. mál, útflutningsgjald af sjávarafurðum

Bernharð Stefánsson:

Herra forseti. Hv. form. sjútvn; þm. Vestm., er veikur, hringdi til mín áðan og bað mig að gera grein fyrir því, að frv. þetta er flutt eftir beiðni atvmrn. og n. mun að sjálfsögðu taka það til nánari athugunar á milli umr., alveg eins og það hefði verið stjórnarfrv. og nú vísað til nefndarinnar.