11.12.1953
Efri deild: 33. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1304 í B-deild Alþingistíðinda. (1365)

123. mál, útflutningsgjald af sjávarafurðum

Frsm. (Jóhann Jósefsson):

Herra forseti. Ég þarf eiginlega enga framsögu að hafa í þessu máli, því að ástæðum fyrir því, að það er fram komið,. er lýst í grg., enda er það framhald af því ástandi, sem verið hefur, gjaldið rá lagt í sérstöku augnamiði, og verður víst svo að vera, þangað til sú stofnun er upp komin, sem um er að ræða.