18.03.1954
Efri deild: 63. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1345 í B-deild Alþingistíðinda. (1487)

78. mál, sala jarða í opinberri eigu

Forseti (GíslJ):

Ég vil leyfa mér að benda á, að málinu nr. 78, á þskj. 107, hinu upphaflega frv., hefur nú verið breytt þannig, að það situr ekkert eftir af málinu eins og það fyrst var boríð fram í þessari hv. deild. Ég mun því taka málið út af dagskrá í dag til athugunar á því, hvort þetta verður ekki að teljast nýtt mál, og verður því málið ekki rætt frekar hér í dag.