05.11.1953
Neðri deild: 17. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 96 í B-deild Alþingistíðinda. (160)

4. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna

Gils Guðmundsson:

Þar sem ég er algerlega andvígur þessum skatti, a.m.k. í þeirri mynd sem hann nú er, og þar sem ég tel hins vegar verulega hættu á því, að erfiðara reynist að losna við hann en ella, ef farið yrði inn á þá braut að heimila bæjar- og sveitarfélögum að hafa hluta hans sem tekjustofn, þá segi ég nei.