02.04.1954
Efri deild: 76. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1436 í B-deild Alþingistíðinda. (1635)

84. mál, kirkjubyggingasjóður

Frsm. (Sigurður Ó. Ólafsson):

Herra forseti. Frv. um Kirkjubyggingasjóð tók smávægilegum breytingum í hv. Nd., og liggur það þess vegna nú hér fyrir til einnar umr.

Þessar breytingar eru þess eðlis, að við flm. höfum ekkert við þær að athuga, og óskum við því eftir, að hv. d. samþykki frv. eins og það liggur nú fyrir á þskj. 597.