09.04.1954
Neðri deild: 84. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1524 í B-deild Alþingistíðinda. (1905)

195. mál, hjúskapur, ættleiðing og lögráð

Frsm. (Ásgeir Bjarnason):

Herra forseti. Allshn. hefur athugað frv. þetta, og leggur hún til, að það verði samþ. óbreytt.

Árið 1931, 6. febr., gerðu Norðurlöndin samning með sér, og fjallar sá samningur um nokkur alþjóðleg einkamálaréttarákvæði um hjúskap, ættleiðingu og lögráð. Fyrir rúmu ári var gerð nokkur breyting á þessum samningi, og liggja þær breytingar hér fyrir í frv. formi.