04.12.1953
Efri deild: 28. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 138 í B-deild Alþingistíðinda. (191)
4. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna
Jóhann Jósefsson:
Herra forseti. Það er aðeins stutt athugasemd og varla það. Ég skal geta þess, að þegar ég talaði um þetta mál dálitið frá almennu sjónarmiði, var það einkum og sér í lagi vegna þess, að ég hef fengið alveg minn hluta af alls konar gagnrýni, vinsamlegri og óvinsamlegri, fyrir þau afskipti, sem ég hafði af þessum málum, og líka fyrir það á sínum tíma, að þessi söluskattur var innleiddur af þá aðkallandi nauðsyn. Ég tók til máls um málið til þess að rekja ofur litið sögu þess og stikla á því stærsta, en ég geri enga kröfu til þess að vera álitinn standa hér sem fulltrúi Sjálfstfl. eða að ræðan væri flutt fyrir hans hönd. Ég eftirlæt hv. þm. Barð. með ánægju þann heiður að tala fyrir flokksins hönd.
Hitt ætla ég, að staðreyndirnar sanni í þessu máli það, sem ég hélt fram, að það hefði gengið á svo mörgum breytingum og ýmsum aðferðum, sem menn hefðu aðhyllzt á hverjum tíma, að oft og tíðum hefði það verið álitið gott og gilt síðar meir og menn hefðu stutt það með atkv. sínu og afskiptum, sem þeir áður hefðu verið búnir að telja ófært, og þar vitnar þingsagan um, að slíkt hefur einmitt komið fyrir minn ágæta kollega, hv. þm. Barð., og má þá nærri geta, hvernig um aðra fer, þegar svo fer með hið græna tré.
Ég álít ekki nema rétt, að rifjað sé upp málið í heild sinni svona dálítið til athugunar, eins og ég hef gert. Sérstaklega álít ég það mikils virði í þessu máli að heyra þær yfirlýsingar, sem hv. þm. Barð. gaf, eða a.m.k. lét mjög skína í í lok sinnar ræðu, að það mundi bráðlega vera von á raunhæfum tillögum, — mér skildist frá mþn. í skattamálum — einmitt til þess að bæta eða auka tekjustofna sveitarfélaganna og þar með að bæta þeirra kjör og hag. Ég væri fyrir mitt leyti mjög þakklátur fyrir, að slíkt kæmi fyrr en síðar í dagsins ljós, og ég ætla, að allir hv. dm. geti verið sammála um, að slíkra aðgerða er orðin mjög brýn þörf í flestöllum sveitarfélögum, þótt með mismunandi hætti sé.