06.10.1953
Efri deild: 3. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 139 í B-deild Alþingistíðinda. (194)

8. mál, tollskrá o. fl.

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Í þessu frv. eru ákvæði nokkur um vörumagnstoll, sem gilt hafa undanfarin ár, en aðeins frá ári til árs. Með þessu frv. er farið fram á, að þessi ákvæði verði framlengd fyrir árið 1953. Sé ég ekki ástæðu til að hafa um það frekari formála, þar sem hér er á ferðinni mjög gamall kunningi hv. dm., en legg til, að málinu verði vísað til hv. fjhn. að lokinni umræðu.