09.04.1954
Efri deild: 83. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1534 í B-deild Alþingistíðinda. (1972)
171. mál, íbúðarhúsabyggingar í kaupstöðum og kauptúnum
Haraldur Guðmundsson:
Herra forseti. Ég hef ekki átt kost á að sjá þessa till. fyrr en rétt nú, er hún er lögð fram og hefur verið lesin hér upp. En mér skilst, að efni hennar sé það, að af því fé, sem á hverjum tíma er til ráðstöfunar til smáíbúðalána, eins og það nú heitir, megi lána bæjarfélögum og sveitarfélögum, sem byggja smáar íbúðir,, ¼ hlutann. Það þýðir augljóslega, að það fé, sem er til ráðstöfunar til útlána til einstaklinga, hlýtur að minnka um þennan ¼ hluta. Nú er hér fyrir þessari hv. d. fm. til l. um lántökuheimild fyrir ríkisstj. vegna smáíbúða, er nemi allt að 20 millj. kr. Af þessu ætti þá að taka, ef um það yrði samkomulag, samkv. brtt. allt að 5 millj. kr., sem lánað yrði svo bæjarfélögum til slíkra bygginga.
Í þeim kafla l. um stuðning við byggingar almennt, sem um þetta efni fjallar, er gert ráð fyrir því, að sérstök fjárútvegun sé til þess að gera sveitarfélögum kleift að byggja smáar íbúðir yfir þá, sem húsnæðislausir eru, og gert ráð fyrir, að sveitarsjóður og ríkissjóður hvor um sig geti tekið á sig að greiða allt að 10% af byggingarkostnaði og þannig lækka íbúðirnar í verði sem því nemur fyrir notendur þeirra.
Mér virðist, að hér sé blandað saman tvennu, sem ekki á saman, og mun því ekki geta greitt þessari till. atkv., því að þar með mundi sjálfsagt hæstv. ríkisstj. líta svo á, að af henni væri létt öllum skuldbindingum til þess að gera sérstakar ráðstafanir til þess að hjálpa bæjarfélögum og sveitarfélögum til að afla sér fjár til þess að byggja íbúðir samkvæmt kafla hinna almennu l. um byggingar, sem um þetta fjalla. Ég get því ekki greitt þessari till. hv. meiri hl. atkv.