27.11.1953
Efri deild: 25. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 141 í B-deild Alþingistíðinda. (198)

8. mál, tollskrá o. fl.

Haraldur Guðmundsson:

Herra forseti. Eins og nál. ber með sér, þá er ég andvígur ýmsum atriðum í 1. gr. frv. og hef áskilið mér rétt til þess að bera fram brtt. við hana og frv. í heild sinni. Því miður hefur mér ekki unnizt tími til frá því í gær, að n. afgreiddi þetta mál, að ganga frá brtt., en ég mun reyna að hafa þær til fyrir 3. umr. og geymi mér þá að tala frekar um málið, þangað til ég legg þær fram.