30.03.1954
Neðri deild: 73. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1649 í B-deild Alþingistíðinda. (2124)

174. mál, stéttarfélög og vinnudeilur

Eggert Þorsteinsson:

Herra forseti. Eins og þm. hafa eflaust séð, þá hefur verið gerð breyting á þeim upphaflegu till. iðnn. Ég sé hins vegar, að frsm. n. er ekki viðstaddur, en veit, að hann mun hafa ætlað sér að gera einhverja grein fyrir þeirri breytingu, sem á er orðin frá því, að frv. lá fyrir til 2. umr. Varðandi breyt. er það að segja, að um hana hefur verið leitað umsagnar viðkomandi aðila að bæta þriðja aðilanum inn í þessa ákveðnu gr., og hafa viðkomandi aðilar ásamt hæstv. iðnmrh. fallizt á, að þessi breyting verði á gerð, og er hún komin hér inn með fullu samþykki allra nefndarmanna.