23.10.1953
Efri deild: 7. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 63 í C-deild Alþingistíðinda. (2225)

57. mál, almannatryggingar

Forseti (GíslJ):

Ég skal taka það fram í sambandi við þær umr., sem hafa farið hér fram um þá till. að senda frv. til fjhn. eða til heilbr.- og félmn., að öllum frv. og öllum lögum, sem snerta almannatryggingarnar, hefur frá upphafi jafnan verið vísað til heilbr.- og félmn. og eiga að sjálfsögðu þar heima eðli sínu samkvæmt. Hins vegar verða till. bornar upp báðar, úr því að hv. flm. heldur fast við sína till. um fjhn.