30.11.1953
Neðri deild: 31. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 186 í C-deild Alþingistíðinda. (2359)

91. mál, kristfjárjarðir

Frsm. (Jón Sigurðsson):

Herra forseti. Það er út af þessari síðari brtt., sem hv. þm. V-Húnv. (SkG) flytur. Nefndin hefur ekki athugað það nægilega, og okkur skilst jafnvel, að hún geti í ýmsum tilfellum raskað alveg tilgangi gefandans með gjöfinni, og vildum þess vegna mælast til, að málið verði tekið út, svo að nefndin hafi tóm til að athuga þetta nánar.