13.04.1954
Neðri deild: 92. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 245 í C-deild Alþingistíðinda. (2421)

165. mál, ríkisborgararéttur

Forseti (SB):

Áður en orðið verður við ósk hv. form. allshn. um að taka málið út af dagskrá, vil ég aðeins vekja athygli hans á því, að síðasti fundur hv. þd. verður haldinn í dag. Ég vildi vekja athygli hv. n. á því, að ef málið á að fá þinglega afgreiðslu á þessu þingi, þá verður hv. n. að ljúka athugun sinni á því á örskömmum tíma.