09.11.1953
Neðri deild: 19. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 471 í C-deild Alþingistíðinda. (2647)
89. mál, olíueinkasala
Viðskmrh. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. Það, sem er spaugilegast við þetta mál, er það, að hv. flm. frv. eru í vafa um það, hvort þeir eigi nú að vísa frv. til 2. umr.
Um það, að ég hafi ekki viljað svara fyrirspurnum hér í dag, vil ég taka fram það, sem ég sagði áðan, að ég er að sjálfsögðu reiðubúinn til þess að gera það undir þeim kringumstæðum, sem þingsköp mæla fyrir. En fyrirspurnir hafa verið hér í dag, ekki aðeins frá hv. 1. flm., heldur frá mörgum, sem hér hafa tekið til máls. Þær hafa verið mjög margar, og það er ekki eðlilegt, að ég gefi skýrslu í þessu máli í dag. Ég mun að sjálfsögðu gera það, þegar fyrirspurnirnar koma fram á réttan hátt. Um það, sem hv. þm. sagði hér áðan, að það væri ekki sanngjarnt, þar sem þm. hefðu ekki nema fimm mínútna ræðutíma í spurningatíma, vil ég segja, að þessir hv. þm. hafa sagt í dag allt um þetta mál, og vilji þeir við það bæta, hafa þeir tækifæri til þess. — Ég segi já við því, að þetta mál fari til 2. umr.