25.03.1954
Neðri deild: 68. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 517 í C-deild Alþingistíðinda. (2679)

125. mál, húsaleiga

Frsm. 1. minni hl. (Páll Þorsteinsson):

Herra forseti. Við 1. umr. þessa máls var gerð nokkur grein fyrir frv., og sé ég ekki ástæðu til að fara að rekja efni þess sérstaklega, nema tilefni gefist til. En frv. þetta hefur legið fyrir til athugunar hjá heilbr.- og félmn. alllangan tíma. Samkomulag varð ekki um afgreiðslu málsins af hálfu n. Minni hl., hv. 2. þm. Rang. (BFB) og ég, leggur til, að frv. verði samþykkt eins og það liggur fyrir, en annar minni hl. hefur gefið út sérstakt álit, sem frsm. hans mun gera grein fyrir. Fimmti nefndarmaðurinn var ekki viðstaddur í n. sökum lasleika á þeim fundi, þegar málið var afgreitt í n.