08.04.1954
Neðri deild: 81. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 615 í C-deild Alþingistíðinda. (2743)

135. mál, brúagjald af bensíni

Gísli Guðmundsson:

Herra forseti. Ég mun að sjálfsögðu ekki ræða þetta mál efnislega. Ég vil aðeins endurtaka þau tilmæli mín til hæstv. forseta, hvað sem líður bréfaviðskiptum hv. samgmn. og hæstv. ríkisstj., að hann hlutist til um það, að n. skili áliti, þar sem nú er orðið mjög áliðið þings.