07.04.1954
Sameinað þing: 45. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 48 í D-deild Alþingistíðinda. (2921)

100. mál, milliþinganefnd í heilbrigðismálum

Frsm. (Halldór Ásgrímsson):

Herra forseti. Fjvn. hefur rætt þessa till. á fundum sínum og enn fremur sent hana til umsagnar landlæknis.

Fjvn. telur heilbrigðismálin svo mikilvæg og kosti þjóðina árlega svo mikið fé, að hún álítur réttmætt að mæla með því, að þessi þáltill. verði samþ., sbr. nál. á þskj. 580.