13.04.1954
Sameinað þing: 49. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 113 í D-deild Alþingistíðinda. (3000)

192. mál, alsherjarafvopnun

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson,):

Herra forseti. Í nótt hafði engin till. komið fram um að láta þetta mál ganga til n., og voru þó allmargir, sem höfðu kvatt sér hljóðs. Nú hefur orðið samkomulag um það til þess að greiða fyrir afgreiðslu málsins að leggja til að vísa því til hv. utanrmn., og geri ég það hér með, en ég vil taka fram, að það er tryggt, að hún mun skila áliti. Það er ekki til þess að koma málinu fyrir kattarnef með því móti, þar sem ætlunin er og það er fyrir fram tryggt, að hún mun þegar halda fund í kvöld og skila áliti, áður en of seint verður til afgreiðslu málsins.