02.12.1953
Sameinað þing: 20. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 334 í D-deild Alþingistíðinda. (3106)

21. mál, uppsögn varnarsamnings

Eggert Þorsteinsson:

Herra forseti. Alþfl. hefur lagt fram þáltill. í þessu sama máli og lýst þar sínum skoðunum. Ég tel hins vegar rétt, að þetta mál fái þinglega afgreiðslu, og segi já við að vísa málinu til nefndar.